6.R (2004-2005)

13.2.2008 05:14:37 / gretar

Andri

.

Andri Sigfússon a.k.a. Gajol-Andri

Hvað ertu búinn að vera að bralla í vetur?

Í vetur hef ég verið að stunda nám við Íþróttaakademíuna í Reykjanesbæ. Þegar ég klára þetta þriggja ára nám verð ég orðinn Bs í íþróttafræðum og þar með íþróttafræðingur. Í vetur hef ég líka verið að þjálfa handbolta hjá Gróttu, 5. og 6..flokk karla (10-14 ára stráka) og hefur það gengið mjög vel. Árangurinn talar sínu máli! Að sjálfsögðu æfi ég enn handbolta með Gróttu og hefur það gengið býsna vel.

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Ég er ekki búinn að redda mér sumarvinnu þannig að ef þið vitið um eitthvað sniðugt endilega látið mig vita! Sumarvinnan mín seinustu 7 ár (og þar með eina sumarvinnan mín) hefur verið lögð niður!!! Í sumar fer í a.m.k tvær utanlandferðir, báðar tengjast þær handbolta. Önnnur er til Svíþjóðar á Partille Cup með 5.flokkinn minn en hin er örugglega til Spánar á Alecante með meistaraflokknum í handboltanum. Ef til vill bætist ein til viðbótar, þá verður hún fljótlega eftir prófin og er skemmtiferð frá a til ö.

Hvað á að gera næsta haust?

Næsta haust ætla ég að halda áfram með Íþróttfræðina og halda áfram í handboltanum en ég ætla að reyna að hætta að þjálfa.


 

Dagsetning
19. mars 2010
Stemmari!!!