6.R (2004-2005)

24.09.2006 21:42:48 / jens

Jensi - loksins

Þá er röðin víst komin að mér :)

 

Hvað ert þú búinn að vera að bralla í vetur?

 

 

  Ég var einn af þessum sem að ákvað að taka mér smá pásu frá námi. Í September á síðasta ári hóf ég vinnu hjá Símanum. Ég vann í tæknilegri aðstoð í þjónustuverinu hjá þeim. Það var nú svo sannarlega ný upplifun, þar sem ég er nú ekki alveg sá besti þegar kemur að tæknilegu hliðinni á tölvum og öðru slíku. En ég lærði nýja hluti, og þetta var hin ágætasta skemmtun ;) Þarna vann ég þar til í byrjun maí á þessu ári.

 

 

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Sumarið reyndar búið og svona, en ég rifja þá upp þetta frábæra sumar sem var að líða. Þessi fyrsti vetur minn án skólabóka þaut svo sannarlega hjá á augnabliki. Með vorinu kom þessi fluga uppí hausinn á mér, að hvað væri betra en að enda þetta ársfrí með að vinna einhverstaðar úti í heimi yfir sumarið? Ég sótti um nordjobb, en fljótlega kom Siggi vinur með hugmynd um að fara til Sitges að vinna. Við gerðum okkur lítið fyrir og forum í helgarferð til Barcelona í apríl. Við skoðuðum aðstæður, og tveim vikum seinna vorum við komnir aftur hingað með one way ticket, ferðatöskurnar og von um að finna einhverstaðar vinnu. Ég fékk fljótlega vinnu á veitingastaðnum Monroes í Sitges. Með enga reynslu af þjóninum, bara áhuga minn um að læra og upplifa eitthvað nýtt.

Sól, strönd, kokkteiladrykkja og skemmtun í 3 heila mánuði. Hljómar alls ekki illa ;) Eitt af mínum skemmtilegustu upplifunum á ævinni! Sé alls ekki eftir þessu. Gaf mér einnig smá fjarlægð frá klakanum, en ég held að allir hafi gott af  því að prófa eitthvað svona einhverntímann á ævinni. Svo kom fjölskyldan líka í 10 daga heimsókn, sem var náttúrulega ólýsanlega gaman

 

Hvað á að gera í haust?

 

Núna í haust hóf ég nám við Lagadeild Háskóla Íslands. Ég verð nú að segja að þetta kom mér bara skemmtilega á óvart, reyndist vera hið skemmtilegasta fag og ég er bara þokkalega sáttur með að hafa ákveðið að demba mér í þetta.

 

Hvar heldurðu að þú verðir staddur eftir 10 ár?

Hmm... góð spurning. Ég vona að ég verði þá væntanlega búinn með masterinn í lögfræði, kominn með góða vinnu, lítið einbýlishús og rauða poloinn minn og einhvern frábæran strák upp á arminn? ;) Og kannski búnir að ættleiða eitt eða tvö börn.. hehe.. hver veit :)

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?

Biðst afsökunar á því hvað ég var lengi að koma með þessa færslu! :) Og vona líka bara að allir hafa það sem allra best, og mér finnst ekkert smá gaman að lesa um hvað þið eruð öll að gera þessa dagana á blogginu! :)

Kveðja,

Jensi Fjalar

Ása skrifaði
jeij, loksins ný færsla :) gaman að heyra að þú sért að fíla lögfræðina líka :) við sjáumst svo bara á lögfræðidjömmunum í vetur :)
Hera skrifaði
Já gaman að sjá smá líf á síðunni! ;) ógeðslega stolt af þér að hafa skellt þér til spánar í sumar, ekkert nema geðveikt að vera þar! ;) sjáumst vonandi fljótlega! ;)
Hulda Kristín skrifaði
Vá, 4 lögfræðingar í bekknum ! Það er nokkuð gott ! Eins gott að fólk haldi sig á mottunni ;)
Grétar skrifaði
Frábært að fá færslu! :) Gaman að sjá hversu vel þú nýttir fríið. Öfunda þig ekkert smá að hafa verið að vinna í 3 mánuði á SPÁNI!!! Þetta er draumur í dós. Arndís biður kærlega að heilsa Jensa sínum. ;)
Eva skrifaði
Frábært hjá þér að fara til Spánar:) alveg sammála að ársfríið var ógeðlsega fljótt að líða:( sjáumst vonandi fljótlega =)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Dagsetning
18. mars 2010
Stemmari!!!