6.R (2004-2005)

30.06.2007 21:59:45 / eva

PARTÝ

Vegna fjölda áskorana ætla ég að halda 6.R-partý föstud. 13. júlí eða 20. júlí :) Væri fínt ef þið gætuð kommentað hvorn daginn hentar ykkur betur... skiptir mig svosem engu máli ;) Vonandi sjá flestir sér fært að mæta!!

 


» 42 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 15:48:43 / thordur

Þórður Gunnar Þorvaldsson, mættur hér!!!! Grétar á ég að brjóta reglustikuna.

Þórður Gunnar Þorvaldsson er mættur til að skirfa hérna á þessa síðu. Já einhverjir vankanntar hafa verið að minni hálfu og ég haft ákveðnar skoðanir á þessari síðu. En jú það er bara ég, já Doddinn ykkar allra sem að þarfa svo oft að vera sá háværasti og með mestu athyglina og JÚ öðruvísi skoðanir.

Það er langt síðan maður hefur heyrt frá ykkur öllum. Árið 2005 urðum við öll viðskila við hvort annað. Ég ákvað að vísu að vera öðruvísi og fór aftur í 6.R, bara svona til að tékka hvort að okkar og hinn eini sanni 6.R hafi ekki verið sá rétti. Viti menn það reyndist vera rétt, gamli 6.R var og er mikið betri en sá nýji. Vona að krakkarnir þar fyrirgefi mér þetta. En það er nú engin furða þar sem að við náðum öll svo vel saman. Að vísu lít ég á útskriftarárgang 2005 úr MR minn útskriftar árgang, þrátt fyrir að ég hafi útskrifast 2006. En GUÐ hvað það var góð tilfinning að útskrifast, maður saknar nú MR, margar góðar minningar þaðan. Var óttarlegur spaði að vísu í MR þetta síðasta ár. Lítið af fögum hjá mér og ég var í stjórn hjá skólafélaginu við að skipuleggja Árshátíð og ýmsa stóra viðburði. Það var mikið gaman. Þetta skólaár gerði ég margt annað líka. Mér var boðin staða að þjálfa aðalhóp sunddeildar KR og vera þar astoðarþjálfari. Það var stórt stökk, stór launhækkun og meiri vinna. Náði ég mjög góðum árangir og lærði mikið. Komin meira að segja með öll þjálfararéttindi. Stelpurnar mínar sem að ég var mest með náðu að setja nokkur Íslandsmet og hvað eina. Þessu var tekið eftir og mér var boðið að taka þátt í landsliðverkefni hjá Unglingalandsliðinu og var ég þar aðstoðarþjálfari. Þannig að margt að gerast hjá mér á þeim bænum.

Ég sjálfur er nú alveg hættur að æfa og svo gott sem búinn að setja skýluna á hilluna. En mannig kitlar í fingurgómana og klórskorti og langar til að fara að æfa aftur. Hver veit nema að ég komi með frægt COME BACK en ég dýfi tánum af og til oní laugina.

Þetta ár kynntist ég stúlku sem að heitir Nanna. Hún frábær og allgjör topp manneskja í alla staði. Við byrjuðum saman og það samband enntist svona í tæpt ár. HEHEHE við áttum greinilega ekki samleið til framtíðar. En allavegana Grétar sagði bara að ég ætti betra skilið og það eru fleiri fiskar í sjónum.

Ég fór síðan í inntökuprófið í læknisfræði vorið 2006 og var þar í 78 sæti e-ð þannig og komst þar með ekki inn. En þá þurfti ég að taka stóra ákvörðun í Ágúst hvað ég ætti að gera. Þannig ég ákvað að aftur að gera e-ð öðruvísi en margir aðrir gera og fór í hjúkrun. Komst í gegnum Clausus. Í hjúkrun er nefnilega clausus próf eins og var í gamal daga í læknisfærði. Sú reynsla hefur gefið mér mikið. Fór aðallega í hjúkrun til að hafa e-ð í höndunum og hvort ég vildi vinna í þessu umhverfi og það á svo vel við mig.

Fór núna um daginn í viðtal fyrir háskólan í Ungverjalandi eða Universitu of Debrecen, þar sem að margir Íslendingar eru nú við nám. Ég fékk inngöngu en er núna að lesa fyrir inntökuprófin aftur og ég og Elli erum að fara í þau. Ég í annað sinn og Elli í það þriðja. Vona svo innilega að hann komist inn. Elli á það svo skilið. Hann búinn að vera massa duglegur.

En eins og þið eflaust vitið þá hef ég verið að vinna öll sumur í Vesturbjarlaug sem sundlaugarvörður. En núna í sumar verð ég að vinna á Lungandeildinni í Fossvogi sem hjúkrunarnemi og verður það skemmtileg reynsla.

Þetta skólaár í Háskólanum hefur verið fínt. Maður búinn að kynnast fullt af nýju fólki. Þó sérstaklega kvennfólki, ekki er það nú verra. En skrýtið að vera einn af sjö karlmönnum í 105 manna bekk hehehe. Bara nice. Maður þekkir nú þetta úr 6.R. Þar vorum við strákarnir í minnihluta;). En það var bara gaman. Ég fór að skipta mér mikið af stjórnmálum þetta skólaárið og fór að taka þátt í stúdentapólitíkinni og var kjörinn í stjórn Röskvu, sem að er hópur félagshyggjufólks við háskóla íslands. Fór líka að gera e-ð fyrir samfylkinguna, enda ég mikill Réttlætis og jafnréttissinni. Er líka búinn að vera með yfirlýsingar í strákavinahópnum og annað ég ætla á þing og jafnvel í Forsetaframboð. Teiti okkar líst vel á það og hefur stutt á bakvið mig þar.

Þetta er orðin dágóð löng færsla hjá mér. það er í lagi, ég hef ekkert skrifað hérna svo árum skiptir HAHAHAHA.

Ég hef lítið ferðast þessi síðast liðin tvö ár. Nema ég fór til DK að hitta Grétar og Arndísi. Dýrka þau út af lífinu.

Það er síðan kominn endir í málið mitt og endaði því miður ekki mér í hag. Þess vegna hef ég verið að vinna líka mikið því maður kominn með dágóða upphæð sem maður þarf að borga. En svona er lífið. Það sem að ekki drepur mann styrkir mann. Góð vinkona mín hún Tinna Mark bennti mér á góðar bækur sem að eru auð- og fljót lesnar. Það eru bækurnar þarna Skyndibitar fyrir lífið mig minnar að hún og þær heita e-ð þannig. Ég mæli með allir lesa þessar bækur. Þær hafa hjálpað mér mikið. Takk Tinna baby;).

En spurningin hvar sé ég mig eftir 10 ár. Ég veit ekki, ætli ég verði ekki komin í Masters-nám í íþrótta eða barnalækningum eða masters nám í skurðhjúkrun. Hver veit. Mig langar mikið til að róa mig og finna einhverja góða stelpu og svona. Mig langar já e-ð er það kannski maður búinn að vera svo lengi í hjúkkunni. Mig langar til að verða Pabbi. Steinunn orðin mamma hver veit hver verður næstur eða næst í bekknum.

Næsta skólaár er óljóst. Veit ekki hvort ég verði hér heima, í Danmörku eða í Ungverjalandi.

Það var kominn tími til að ég skrifaði hérna. Vona að þið nennið að lesa þetta. Er alltaf að skamm Grétar fyrir langar færslur. Ekki er mín neitt skárri HEHEHE:D En mikið sem að hefur gerst hjá mér. Ég sakna ykkar allra, verðum að reyna að hittast við tækifæri. En það er komið að því kveðja í bili. Vona að ég hafi svarð öllu. Það eina sem að ég vil koma á framfæri er það.....

Viljið þið öll vera svo væn að lifa lífinu til fulls. Það er svo stutt og skemmtilegt. Það sem ekki drepur mann styrkir mann. Ein speki líka sem að ég hef haft að leiðarljósi og búið til

Það skiptir engu máli hvernig þú fellur, það hrasa allir á lífs leiðinni bara misdjúpt, heldur skiptir það máli hvernig þú stendur upp aftur.

En ég elska ykkur öll, takk fyrir stuðningin á síðustu árum. Njótið sumarsins og finnuð ykkur elskhuga þið sem ekki eruð búin að því.

Með kveðju

Ykkar eini og sanni Doddi. 


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 15:45:56 / teitur

Teitur



Hvað ertu búinn að vera bralla í vetur?
Veturinn eftir að ég kláraði MR fór ég í lögfræði í HÍ án mikillar umhugsunar. Það var einstaklega góð ákvörðun hjá mér þó ég segi sjálfur frá. Ég komst í gegnum síuna um jólin og hef haldið hægt og rólega áfram í því námi. Veturinn í ár er búinn að vera svipaður, læra lögfræði og fara í kokteila þess á milli.

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?
Síðasta sumar var ég svo heppinn að komast inn í Lögfræðiinnheimtu Landsbankans og ég mun líklega halda því áfram þetta sumar. Í því felst að senda ykkur gluggapóst ef þið greiðið ekki skuldirnar ykkar. Ef þið ansið því ekki þá tek ég af ykkur húsið. Einfalt, ekki satt? Svo skrapp ég á Hróaskeldu í fyrra og líkaði vel og ég geri ráð fyrir því að fara aftur í ár.

Hvað á að gera í haust?
Næsta haust verð ég væntanlega á 3.ári í lögfræði og læri þá Refsirétt, kröfurétt og fleira skemmtilegt. Ekkert annað liggur fyrir.

Hvar heldurðu að þú verðir staddur eftir 10 ár?
Jahh. Erfitt að segja. Vonandi verð ég búinn í námi og jafnvel búinn að sérhæfa mig eitthvað. Þá væri líka fínt að vera búinn að finna sér konu og jafnvel flytja að heiman(fyrir 32 ára aldur, er það kannski heldur snemmt?).

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?
Steinunn er búin að eiga og óska ég henni til hamingju með það.


» 7 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 23:10:04 / steinunn

Steinunn

Hvað ert þú búin að vera að bralla í vetur?

Ég ákvað að taka mér ársfrí eftir stúdentinn og fór norður á Sigló að vinna á safninu eins og undanfarin ár. Lengi var ég óákveðin hvort ég ætti að vera fyrir norðan um veturinn líka eða koma suður og vinna hér en þá var mér boðin vinna á veitingastað fyrir norðan og varð það úr að ég vann þar allan veturinn. Fínt að prófa eitthvað nýtt og þetta var góð reynsla. Ekki skemmdi fyrir hversu gott ég hafði það heima hjá mömmu og pabba, var búin að gleyma hversu gott það er að vera litla barnið á heimilinu;)

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Sumarið er auðvitað búið en mitt var í grófum dráttum svona... í byrjun maí komst ég að því að lítill laumufarþegi var um borð, ójá, lítið kríli boðaði komu sína um áramótin og var ég nánast allt sumarið að átta mig á þessu held ég...:$ Síðustu vikuna í maí fór ég með vinkonu minni til Tenerife í smá afslöppun og byrjaði síðan að vinna á safninu í byrjun júní. Það var alveg kærkomið að vinna á aðeins rólegri stað enda var morgunógleðin (sem stendur ekki undir nafni btw!:frown: ) að hrekkja mig og kom hvenær dags sem er.

Hvað á að gera í haust?

Planið var að fara í sagnfræði í haust en þar sem ekki var vitað hvort taka þyrfti barnið með keisara vegna hættu á heilablæðingu ákvað ég að fresta því. Keisaraskurðurinn hefði verið framkvæmdur í miðri prófatíð og vildi ég ekki byrja á einhverju sem ég gæti e.t.v. ekki lokið. Í byrjun september fór ég svo í æðamyndatöku til að fá þetta á hreint og er öruggt að ég er ekki með þennan erfðagalla og má því eiga eðlilega:) Ég kom þó að sjálfsögðu suður þegar vinnunni minni lauk á safninu í lok september og hef því aðallega verið að láta Gaua halda mér uppi og hafa það gott;)

Hvar heldurðu að þú verðir stödd eftir 10 ár?

Ef allt gengur að óskum verð ég orðin sagnfræðingur og hef það gott með kallinum og krakkanum (sem verður btw 10 ára - sjáið þið gráu hárin vaxa eins og ég??8|) á einhverjum góðum stað, hvort sem það verður í útlöndum eða ekki - við stefnum allaveganna á að fara út eftir tvö ár til að læra, hvort maður endi þar á bara eftir að koma í ljós...

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?

Þið megið endilega senda mér góða strauma þann 7. janúar en þá hefur krílið pantað far með storkinum! Annars óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið hafið það sem best;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 17:27:58 / petur

Pétur

 Sæl og blessuð. Hvað gerði ég eftir MR? Ég fór í Iðnskólann í Reykjavík á hönnunar-og listnámsbraut til þess að undir búa mig fyrir arkitektanám. Mér fannst námið í Iðnskólanum miklu skemmtilegra (ég var næstum hættur í MR undir restina, fannst þetta svo hundleiðinlegt) og tók ég þátt í stóru hönnunarverkefni fyrir skólann sem að við sem að gerðum fengum svo verðlaun fyrir. Síðasta vor reyndi ég svo við að komast inn í arkitektaskóla bæði hérna heima og í Danmerku og Noregi. Eftir að hafa farið í viðtal í Noregi fékk ég inngöngu og er staddur núna í Bergen í Bergens Arkitektskole. Ég flutti sem sagt hingað út 23. ágúst og fyrstu 4 vikurnar í skólanum fóru fram á smáeyjunni Utsira (fjöldi íbúa á eyjunni er 250 manns) og 2 vikur bjó ég í tjaldi í 15 min fjarlægð frá næstu byggð og hinar 2 vikurnar í fiskhúsi. Eftir að við komum aftur frá eyjunni er búin að vera stanslaus verkefnavinna og ég gat loksins síðustu helgi byrjað að telja með hinum 5 puttum öll þau skipti sem að ég hef farið að göltrast síðan ég flutti út. Spurningin hvar ég verð eftir 10 ár get ég engann veginn svarað. Kannski á Íslandi, Noregi eða jafnvel einhvers staðar annar staðar. Allra vegana er það frekar öruggt að ég verði hérna í Bergen næstu 5 árin.
Þið ykkar sem að viljið sjá myndir eða lesa um dvöl mína úti, þá bendi ég ykkur á www.blondecowboy.blogspot.com
Ha det Bra
Hyttegutten

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 20:13:22 / magnus

Magnús !

                        Hvað ert þú búinn að vera bralla í vetur ?

 Ég uppfyllti gamlan draum um að flytja til barcelona. Fékk tvo góða félaga með mér og við bjuggum saman í nokkra mínútna fjarlægð frá catalunya torgi. Ég ætlaði mér að tækla spænskuna og jafnvel fara vinna sem kaupmaðurinn á horninu innan skamms. Fyrstu mánuðina var þó mikið af heimsóknum þannig að mikill tími fór í að fara á ströndina skoða bæinn og skemmta sér á kvöldin. Þegar það var farið að líða á desember fannst mér kominn tími til að fara í spænskuskóla enda hafði mér ekki mikið farið fram í spænskunni og var í honum í tvær vikur. Eftir jól fór ég til Chile með Sissu, hún bjó þarna þegar hún var lítil og talar spænsku sem var mjög gott því chilearnir ekki góðir í ensku. Þar ferðuðumst við um allt endilangt landið, sem var mjög gaman og áhugavert og ekki verra að það var mitt sumar þar.

                            Eitthvað spennandi á döfinni í sumar ?

  Sumarið er búið :(

                                Hvað á að gera í haust ?
 

ég skellti mér í umhverfis- og byggingarverkfræði í hí og líst bara vel á.

                                 Hvar verðuru staddur eftir 10 ár ?

Erfið spurning langar allavega að fara í skóla úti og búa eitthvað meira í útlöndum svo það er aldrei að vita hvar maður verður staddur.

              Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri ?

Er ekki málið að taka pásu í einni vísindaferð og halda alvöru 6-R hitting. Með Gajol og öllu sullinu.


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 00:35:11 / hulda

Endurlífgun...

Til að lífga aðeins upp á þessa síðu ákvað ég að benda ykkur á það að hægt er að horfa á gamlar MR-myndir á heimasíðu Framtíðarinnar. Þar er meðal annars að finna myndina Tortímandinn þar sem tveir af meðlimum bekkjarins leika í afar eftirminnulegu sturtuatriði.

Góðar stundir og munið - kauptu þinn eiginn !

Til að nálgast myndirnar er að finna á Framtíðarsíðunni undir myndbönd.

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2006 21:42:48 / jens

Jensi - loksins

Þá er röðin víst komin að mér :)

 

Hvað ert þú búinn að vera að bralla í vetur?

 

 

  Ég var einn af þessum sem að ákvað að taka mér smá pásu frá námi. Í September á síðasta ári hóf ég vinnu hjá Símanum. Ég vann í tæknilegri aðstoð í þjónustuverinu hjá þeim. Það var nú svo sannarlega ný upplifun, þar sem ég er nú ekki alveg sá besti þegar kemur að tæknilegu hliðinni á tölvum og öðru slíku. En ég lærði nýja hluti, og þetta var hin ágætasta skemmtun ;) Þarna vann ég þar til í byrjun maí á þessu ári.

 

 

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Sumarið reyndar búið og svona, en ég rifja þá upp þetta frábæra sumar sem var að líða. Þessi fyrsti vetur minn án skólabóka þaut svo sannarlega hjá á augnabliki. Með vorinu kom þessi fluga uppí hausinn á mér, að hvað væri betra en að enda þetta ársfrí með að vinna einhverstaðar úti í heimi yfir sumarið? Ég sótti um nordjobb, en fljótlega kom Siggi vinur með hugmynd um að fara til Sitges að vinna. Við gerðum okkur lítið fyrir og forum í helgarferð til Barcelona í apríl. Við skoðuðum aðstæður, og tveim vikum seinna vorum við komnir aftur hingað með one way ticket, ferðatöskurnar og von um að finna einhverstaðar vinnu. Ég fékk fljótlega vinnu á veitingastaðnum Monroes í Sitges. Með enga reynslu af þjóninum, bara áhuga minn um að læra og upplifa eitthvað nýtt.

Sól, strönd, kokkteiladrykkja og skemmtun í 3 heila mánuði. Hljómar alls ekki illa ;) Eitt af mínum skemmtilegustu upplifunum á ævinni! Sé alls ekki eftir þessu. Gaf mér einnig smá fjarlægð frá klakanum, en ég held að allir hafi gott af  því að prófa eitthvað svona einhverntímann á ævinni. Svo kom fjölskyldan líka í 10 daga heimsókn, sem var náttúrulega ólýsanlega gaman

 

Hvað á að gera í haust?

 

Núna í haust hóf ég nám við Lagadeild Háskóla Íslands. Ég verð nú að segja að þetta kom mér bara skemmtilega á óvart, reyndist vera hið skemmtilegasta fag og ég er bara þokkalega sáttur með að hafa ákveðið að demba mér í þetta.

 

Hvar heldurðu að þú verðir staddur eftir 10 ár?

Hmm... góð spurning. Ég vona að ég verði þá væntanlega búinn með masterinn í lögfræði, kominn með góða vinnu, lítið einbýlishús og rauða poloinn minn og einhvern frábæran strák upp á arminn? ;) Og kannski búnir að ættleiða eitt eða tvö börn.. hehe.. hver veit :)

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?

Biðst afsökunar á því hvað ég var lengi að koma með þessa færslu! :) Og vona líka bara að allir hafa það sem allra best, og mér finnst ekkert smá gaman að lesa um hvað þið eruð öll að gera þessa dagana á blogginu! :)

Kveðja,

Jensi Fjalar


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 10:59:31 / hulda

Sorry, gott fólk

Þessi læsing á síðunni er komin frá mér út af því að ég tók myndina úr skólapóstinum sem er læstur og læsingin fylgdi því myndinni. Ég er hins vegar búin að taka myndina svo lásinn er vonandi farinn.

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 16:43:27 / hrafnhildur

Hrafnhildur...svolítið sein á ferð :)

Hvað ert þú búin að vera að bralla í vetur?

 

Síðasta vetur ákvað ég ólíkt mörgum skólafélögum að taka mér ársfrí. Í þessu góða fríi ákvað ég að skella mér til Chile eins og margir vita eflaust. Það var alveg æðislegt í alla staði en ég var úti í rúma 4 og hálfan mánuð. Frábær lífsreynsla sem ég vildi sko ekki skipta fyrir neitt :D

Svo þegar ég kom heim fór ég að vinna og er búin að vera í La Senza í Kringlunni eins og margar af gömlu bekkjasystrunum vita eflaust líka ;)

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Jah, ég segi bara eins og Hulda....sumarið búið og svona...ekki að það hafi verið eitthvað svakalegt hvort eð er. Jaa, ég er nú bara búin að vera að vinna í sumar og skellti mér reyndar til Krítar í hálfan mánuð sem var mjög kærkomið :D svo var smá sumarbústaðarferð núna í ágúst en ekki mikið meira en það. Djammið hefur reyndar verið stundað af ágætis krafti ;)

Hvað á að gera í haust?

 

Ég hef ákveðið að geyma skólann í eitt ár í viðbót og verð sum sé að vinna fram á næsta sumar áfram í La Senza. Það er svo sem ekki slæmt enda mjög gaman í vinnunni. Það er bara svo rosalega margt í boði í þessum blessuðu skólum að maður getur varla ákveðið sig :P

Hvar heldurðu að þú verðir stödd eftir 10 ár?

Eftir 10 ár verð ég vonandi komin með mann og búin að læra það sem ég vill og gera sem mest. Ég er ekki alveg viss með börnin en þau hljóta að koma fyrr eða síðar ;) a.m.k. langar mig að ferðast sem mest á þessum komandi árum.

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?

Jah, ég vona að allir hafi haft það gott í sumar þar sem ég hef ekki séð ykkur öll. Margir eiga spennandi ár framundan og ég óska bara öllum góðs gengis í hverju því sem þeir taka sér fyrir hendur. MR verður samt alltaf bestur ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 16:38:16 / hulda

Jebb það er komið að mér...

H vað ert þú búin að vera að bralla í vetur?

Ég hef lengi ætlað að fara í lögfræði en stóra spurningin var hvar ? Ég ákvað að sækja um í HR eftir að frændi minn sem er lögfræðingur var búinn að ráðleggja mér eindregið að fara í HR. Ég sótti líka um í HÍ en var of sein að senda inn afrit af stúdentsprófi út vegna þess að veikindi í fjölskyldunni settu stórt strik í reikningin á þessum tíma og ég var ekki alveg tengd við veruleikann. Svo kom sá dagur að ég fékk bréf frá Háskólanum í Reykjavík að ég hefði fengið inngöngu (Forseti lagadeildarinnar var reyndar þegar búinn að segja mér að allir MR-ingar fengju inngöngu - við vituðum það krakkar við erum best ;) ). Ég ákvað því að slá til og fara í lögfræði í HR fyrst það voru 250 manns sem sóttu um lagadeildina þar en aðeins 90 fengu inngöngu þá hlyti þetta að vera eitthvað spennandi. Ég var ekkert yfir mig hrifin af þessum skóla enda er hann dálítið mikið öðruvísi en gamli góði MR.

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Ja, sumarið er nú reyndar að verða búið... Ég er að vinna í móttökunni á Fosshótel Áningu á Sauðárkróki sem er fínt. Það geta komið ansi skondin atvik þegar maður vinnur í móttöku eins og til dæmis um daginn var hollenskt par sem sagði mér frá uppáhalds star trek þættinum sínum sem fjallaði um hvali og rétt í þessu fór kona að gráta hérna í móttökunni yfir því að hún ætti að vera í herbergi í kjallaranum... Hún hefði átt að vera í Gamla skóla ! Sjúklega þröngt, fúkkalykt og einangrað með mosa ! - I luv it ;) Síðan er ég búin að vera mjög dugleg að ferðast í sumar og sjá margt nýtt sem ég hef ekki áður séð. Ég skellti mér meira að segja á Siglufjörð til að heimsækja Steinunni og skoða safnið hennar en nei þá var mín bara veik ! Ég verð því að gera mér aðra ferð þangað við tækifæri en ég hitti Tinnu sem var úti að skokka svo þetta var nú ekki alsæm ferð. Mest spennandi af öllu saman er þó að ég er að fara til San Francisco eftir 4 daga !!!! Skólinn byrjar reyndar 21.ágúst but who cares...

Hvað á að gera í haust?

Árið gekk vel námslega séð og mér finnst lögfræði ótrúlega skemmtileg en ég var ekki að fíla félagslegu hliðina. Eftir miklar vangaveltur hef ég ákveðið að halda áfram þarna þar sem ég er búin með eitt ár því að ef ég færi að flytja mig yfir þyrfti ég að byrja frá byrjun. En já allaveganna þá leggst þetta ár bara vel í mig. Við erum í áhugaverðum fögum, með spennandi kennara og maður er farin að kynnast fleirum svo vonandi verður þetta skemmtilegt ár.

Hvar heldurðu að þú verðir stödd eftir 10 ár?

Þetta er nú ekki einföld spurning en vonandi verð ég búin með lögfræðina og búin að búa og læra erlendis. Draumurinn er náttla að komast í spennandi starf og koma sér upp fjölskyldu. Þetta er ekkert smá skrýtin tilhugsun að vera hugsa 10 ár fram í tímann, þá verðum við 30 ára og það er svo margt getur gerst á 10 árum.

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?

Ég held að ég taki undir með ykkur að ég er farin að sakna MR ótrúlega mikið og hef saknað hans frá útskrifardeginum. Ég sakna þess mest að vera í bekk með svona skemmtilegu fólki og allra rugluðu kennarana... Það er svo erfitt að segja nákvæmlega hvers maður saknar ég held að það sé bara MR andinn.. Gvuð hvað maður er væminn


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 12:20:20 / gretar

BBQ á morgun!!!

JÁ, þá er það staðfest. 6.R-grillveislan verður haldin á annað kvöld í garðinum mínum. Leiðinlegt að allir skuli ekki geta komist. :( En það er auðvitað sumar og fólk er mikið erlendis eða notar helgarnar í að fara út á land. Held því að þótt við myndum slá þessu á frest og velja aðra helgi þá myndu svipað margir koma. Svona eru bara sumrin. Erfitt að koma öllum saman á sama tíma. Við neglum þetta niður á morgun og reynum svo að gera eitthvað saman aftur við fyrsta tækifæri. Það er ekki eins og þetta sé síðasti 6.R-hittingurinn! 8)

Hér fyrir neðan koma mikilvægar upplýsingar um BBQ-veisluna:

(1) Mæting kl. 19. Kveikjum á tónlistinni og fírum í grillinu um sjöleytið.

(2) Haldið í garðinum á Smáragötu 6. Þið gangið niður innkeyrsluna og opnið brúna hurð (vinstra megin við bílskúrshurðina).

(3) Þeir sem vilja vera með í "sameiginlega matnum" leggja 1000 kr inn á reikninginn minn FYRIR kl. 15 á morgun (föstudaginn 7. júlí). Ég sendi ykkur sms á eftir með reikningsnúmerinu og kennitölu. En auðvitað er ykkur líka velkomið að koma með eigin mat sem kokkurinn grillar fyrir ykkur. :D

(4) Reikningsnúmerið er: 0311-26-005985 og kennitala: 090485-2379

(5) Koma með eigið áfengi!!!

(6) Innifalið í þessum 1000 kr er:  2 hamborgarar, grænmeti, sósur (BBQ, hamborgarasósa, tómatsósa), krydd, ostsneiðar, ananas (fyrir þá sem vilja gera Gnúsa special), gos, snakk og franskar.

(7) Ef það verður afgangur, þá endurgreiðum við ykkur annað kvöld.

(8 Við kaupum inn fyrir þá, sem eru búnir að borga, eftir vinnu á morgun. Ef einhver hefur ekki tök á að millifæra þá er hægt að hringja í okkur og við finnum aðra lausn. Minnsta mál! ;)

(9)  Makar velkomnir!!! Bara láta vita fyrir kl. 15 á morgun. ;)

(10) Nánari upplýsingar hjá Grétari 8670660 og Arndísi 8679308.

Veðurspáin til kl. 18 á morgun:

Fremur hæg breytileg átt. Dálítil rigning eða súld norðantil, en annars skýjað með köflum og sums staðar skúrir. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast A-lands. Norðan og norðvestan 5-13 m/s á morgun, hvassast á annesjum vestantil. Víða rigning, en skýjað með köflum og þurrt sunnan- og suðvestanlands.

Veðurspáin eftir kl. 18 á morgun:

Um kl. 19 fer að rofa til og hitinn rýkur upp úr öllu valdi. Við hvetjum Reykvíkinga til að fara út að grilla og njóta veðurblíðunnar annað kvöld. Hiti á bilinu 16 til 22 stig. 8)

Þá varð það ekki fleira. Hlakka bara ótrúlega mikið til að sjá ykkur!!! :D


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 08:43:05 / gretar

BBQ-grillveisla 6.R á föstudaginn (9.júlí)???

Góðan daginn kæru bekkjarfélagar. Við Arndís getum haldið BBQ-veisluna á föstudaginn í garðinum mínum.....ef ykkur er fært að mæta þá (frá kl. 18-23). Veðurspáin er ótrúlega góð.....heiðskírt, logn og 19°C hiti. ;) Allir að commenta og segja já/nei. Annars verðum við að finna annan dag sem er hentugri....en það er ekki öruggt að við getum haldið þetta seinna.

Við vorum að spá í að allir myndu leggja 1000 kr í púkk og svo myndum við sjá um að kaupa í veisluna......bjór (kút eða dósir), burgers og meðlæti, snakk, gos o.fl. Þetta er býsna stór garður og við eigum nóg af stólum og borðum svo það er minnsta mál að halda þetta á Smáragötunni. En það er náttúrulega ekki gaman að halda þetta núna á föstudaginn ef það eru margir sem komast ekki. Endilega að commenta sem fyrst svo við getum byrjað að plana þetta.....megið líka koma með einhverjar hugmyndir varðandi veisluna! :)

Kv. Arndís & Grétar

» 38 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 16:24:23 / arndis

Þetta er Hera :)

Hvað ert þú búin að vera að bralla í vetur?

Eftir miklar vangaveltur ákvað ég að skella mér í lyfjafræði í HÍ og er búin að vera að lyfjafræðast og skrifa skýrslur síðan þá! En mér er alltaf að lítast betur og betur á þetta nám og er alveg að fílaða og krakkana sem eru með mér ... þó þau reyndar komist nú ekki með tærnar þar sem þið hafið hælana! 8) En veturinn var reyndar soldið kreisí, dagarnir eru búnir að vera álíka og Grétars, skóli til ca. 4, læra, æfing kl. 6, læra meira, vinna smá, reyna að eiga líf og hitta stellurnar mínar, vini og kærasta, en hann flutti einmitt hingað í október og er búinn að vera hérna síðan! ;)

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?

Ég byrjaði sumarið daginn eftir próf en þá fórum við Jordi til New York í viku, geeeggjuð borg vægast sagt! En þegar ég kom heim byrjaði ég að vinna sem flokkstjóri í unglingavinnunni hérna á nesinu! Rosa fín vinna með skemmtilegum krökkum, vinn til hádegis á föstudögum sem er ágætis kostur! :haha: En svo fer ég til Barcelona í ágúst í nokkrar vikur að eltast við sólina sem hefur eitthvað verið í felum hérna á Íslandi so far! Annars bara djamm og hafa gaman!

Hvað á að gera í haust?

Halda áfram í lyfjafræðinni og handboltanum og sömu geðveikinni held ég barasta! Svo kannski ég fari aðra hverja helgi til Danmerkur í heimsókn til Arndísar og Grétars ;)

Hvar heldurðu að þú verðir stödd eftir 10 ár?

Úff hard to tell! Ég ætla allvega að vera búin að búa í útlöndum, ef ég verð ekki bara í útlöndum, orðin lyfjafræðingur með mann, hús og bíl...time will tell... 8)

Eitthvað skemmtilegt sem þú vilt koma á framfæri?

Ég segi bara eins og allir hérna á undan, 6R grillpartý, sakna ykkar allra! Tár tár...en en maður er alltaf að læra að meta betur og betur árin sín í MR, takk fyrir mig! ;)

Endilega halda áfram umræðunni um hvenær hentar best að hittast í sumar, ég persónulega kemst allar helgar, ja nema 8. júlí  so, so...sjáumst fljótlega! ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 19:57:21 / gretar

Veturinn 2005-2006



...rétt fyrir "stóladansinn" í útskriftarpartýinu hjá Dodda

Hvað ert þú búinn að vera að bralla í vetur?
Í vetur hóf ég nám við verkfræðideild Háskóla Íslands, eins og Anna Hulda og Brynja. Maður var bara að reikna stærðfræði allan daginn út og inn. Ég hafði varla neinn tíma fyrir neitt annað en skólann og körfuboltann. Venjulegur dagur var einhvern veginn svona: skóli frá kl. 8-16, bókhlaða til kl. 18, æfing til kl. 20 og svo læra heima til kl. 23, spjalla við Arndísi til miðnættis (þetta var líka svona um helgar). Gaman, gaman!!! :) Þið getið rétt ímyndað ykkur hversu ánægt litla blómið mitt var á þessum tíma. Hahahaha. ;) Eftir kærkomið jólafrí þá hófst seinni önnin í geðveikinni. Ég var alveg búinn að skipuleggja námið um jólin og ætlaði svo sannarlega að tækla þessa verkfræði.....en ég held að ég hafi bara lært ennþá meira og lengur. Þegar febrúar var hálfnaður þá var mér boðið að kíkja í heimsókn á arkitektastofuna Batteríið. Ég fékk að labba um stofuna og sjá hvað allir voru að bralla. Það má segja að eftir þessa heimsókn þá hafi ég verið alveg handviss um að þetta starf ætti við mig. Eftir heimsóknina þá fékk ég símtal frá meistaranum Pétri Blöndal. Hann sagði mér að það væri komið verkefni á netið sem maður þurfti að senda út til Danmerkur til þess að komast inn í annan hvorn arkitektaskólann þar (Köben eða Árósum). Ég hugsaði lengi um þetta um kvöldið og ákvað svo að hætta í öllum fögunum í verkfræðinni nema tveimur (sem gætu gagnast mér í arkitektanáminu). Það er skrítið hvernig lífið mann getur gjörbreyst á einni kvöldstund!!! Takk fyrir að láta mig vita Pettuh! Ég vann svo í þessu verkefni í tæpan mánuð ásamt því að mæta nokkrum sinnum í viku í skólann. Í lok apríl fékk ég svo að vita að ég væri einn af 250 einstaklingum sem höfðu verið valdir úr stórum hópi til þess að þreyta inntökupróf í lok maí. Ég flaug síðan um daginn til Köben og þreytti prófið sem stóð í 2 daga (2*9 klst). Núna bíð ég bara spenntur eftir svari frá skólanum.....en það verða 140 valdir (fáum svar í lok júní).

Er eitthvað spennandi á döfinni í sumar?
Í sumar verð ég að vinna á Batteríinu (arkitektastofa í Hafnarfirði). Maður frænku minnar er einn af yfirmönnunum þar og bauð hann mér sumarvinnu við að smíða módel.....hann var líka mjög hrifinn af módelinu sem ég smíðaði fyrir verkefnið (sem ég sendi til Köben). Ég byrjaði sem sagt að vinna í apríl og það er bara h*lvíti gaman! Ykkur finnst þetta kannski pínu nördalegt.....sitja og smíða módel. Þetta er samt ekki alveg sami fílingur eins og að sitja og setja saman flugvél eða eitthvað álíka. Hehe. :) Þessi vinna var allavega góð æfing fyrir inntökuprófið og vonandi er hún góð reynsla fyrir komandi vetur, þ.e.a.s. ef ég kemst inn í arkitektaskólann.

Hvað á að gera næsta haust?
Við Arndís pökkum niður og flytjum til Köben (kannski Árósa) í byrjun ágúst....það er allavega ákveðið. Hins vegar vitum við ekki alveg hvað við erum að fara að læra. Ef ég kemst ekki inn í arkitektinn þá er ég með alveg ágætis B-plan. Ég sótti um byggingafræðinginn sem vara. Það er svona blanda af verkfræði og arkitektúr.....held ég. Eftir 3 annir þar, þá kemst ég beint inn í arkitektaskólann....án þess að þurfa að fara í gegnum þetta langa ferli....verkefni og inntökupróf. Veiii!!!

Hvar heldurðu að þú verðir staddur eftir 10 ár?
Hmmm....nýorðinn 31 árs. Ætli maður verði ekki farinn að vinna á einhverri arkitektastofu.....hanna byggingar o.s.frv. Vonandi verðum við Dísa búinn að kaupa íbúð í einhverju nettu þriggja hæða húsi í Vesturbænum eða bara í þessum nýju hverfum í útjaðri Reykjavíkur. Síðan verðum við örugglega búinn að eignast eitt eða tvö börn, svartan labrador, kaupa silfurgráan Audi.......jarijarijari. ;)

Eitthvað skemmtilegt sem þu vilt koma á framfæri?
Verðum við ekki að halda 6.R-barbeque-veislu.....ég sé fyrir mér sólríka kvöldstund, Gnúsa-special á grillinu, áfengar veigar, netta tónlist og mikið fjör. Hvenær hentar flestum að hittast? Það hentar mér allavega best helgina eftir fyrstu helgina í júlí! :) Já, allir að fara í Hallgeirsey fyrstu helgina í júlí (sjá www.Hallgeirsey.tk). Það verður brjálað stuð! Veit að Ása, Anna Hulda, Arndís og ég erum allavega pottþétt að fara. Eru einhverjir fleiri að fara sem ég veit ekki um???

Ég er ekkert smá sáttur með hvað þið eruð búin að vera dugleg að skrifa pistil. Þetta er alveg búið að halda síðunni gangandi! Væri gaman að geta haldið blogginu gangandi næstu árin. Þetta er frábær leið til að geta séð hvað gömlu bekkjarfélagarnir eru að taka sér fyrir hendur. En allavega....vonandi náum við að grilla saman í sumar! Sakna gömlu 6.R-partýanna!

Kv. Grétar

» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12
Dagsetning
23. febrúar 2012
Stemmari!!!